Fréttir - Danut Dragan frá Rúmeníu

Fyrir tæpum tveimur árum var byrjað á 10 íbúðum í Ólafsvík. Frá byrjun hefur Danut stjórnað framkvæmdum. Hann hefur drifið verkið áfram og fengið viðurnefnið GENERAL eins og góðum hershöfðingja sæmir. Með honum hefur verið kona hans, Dana og aðrir Rúmenar, Dorel og Addi ásamt fleirum.

Ekki hefur verið unnið eingöngu við þetta verkefni heldur hefur samhliða verið byggt Frystihótel í Grundarfirð. Þá eru samskonar 10 íbúðir nú fokheldar í Grundarfirði.

Við þökkum Danut vel unnin störf og vonum að hann verð sem lengst í vinnu hjá Nesbyggð ehf.

Páll Harðarson
framkvæmdastjóri

30. október 2008                                        <Til baka>