Fréttir - Skrifað undir samning um nýja björgunarstöð

Í Skessuhorni, vesturlandsvefnum, segir frá því að þann 7. apríl s.l. skrifuðu Björgunarsveitin Lífsbjörg í Snæfellsbæ og Slysavarnadeild Helgu Bárðardóttir á Hellissandi undir verksamning við Nesbyggð ehf. vegna húsbyggingar í Rifi. Að söfn Halldórs Sigurjónssonar, ritara Lífsbjargar lánar Nesbyggð til verksins 20 miljónir til fimm ára vaxtalaust með einum gjalddaga á ári.

Samningurinn felur í sér að Nesbyggð ehf. mun byggja nýja björgunarstöð við Hafnargötu 1 í Rifi og skila húsinu fokheldu og fullkláruðu að utan eigi síður en 15. september í haust. Húsið verður steinsteypt 600 m² að stærð með 220 m² steyptu millilofti þar sem félagsaðstaða, stjórnstöð, eldhús og borðsalur verða. Á neðri hæð hússins er búningsaðstaða, búnaðargeymsla auk 380 m² bíla- og tækjageymslu. Eins og fyrr segir mun Nesbyggð ehf. skila húsinu fullkláruðu að utan, flísaklæddu og með öllum hurðum, gluggum og fimm stórum innkeyrsluhurðum. Auk þess mun Nesbyggð annast alla jarðvinnu og pípulögn í grunni. Verksamningurinn hljóðar uppá 52 miljónir króna og er þá allt innifalið að undanskildum gatnagerðargjöldum, byggingarleyfisgjöldum, rafmagns- og vatnsinntaki.

“Eins og gefur að skilja er þetta stór biti fyrir þessi félagasamtök en stór þáttur í því að þetta er hægt er að Nesbyggð ehf. lánar til verksins 20 miljónir til fimm ára vaxtalaust með einum gjalddaga á ári. Þá samþykkti bæjarstjórn Snæfellsbæjar á dögunum að kaupa Líkn á Hellissandi sem og að fella niður öll gatnagerðar- og byggingarleyfisgjöld af húsinu. Þá var send inn á öll heimili og fyrirtæki í Snæfellsbæ beiðni um styrk og gekk sú söfnun framar öllum vonum. Það dylst engum hve mikil nauðsyn þessi húsbygging er. Núverandi húsnæði eru sprungið utan af starfsemi okkar og búnaði og mun nýja húsið stytta viðbragðstíma og samhæfa öll björgunarstörf hvort sem það er til lands eða sjóss,” segir Halldór Sigurjónsson ritari Lífsbjargar.

Hann segir að bæði Lífsbjörg og Slysavarnadeildin Helga Bárðardóttir vilji nýta tækifærið og þakka öllum þeim sem hafa veitt þessum stóra áfanga brautargengi með styrkjum og hlýhug. “Hvar sem við höfum komið og kynnt okkar mál höfum við verið hvött áfram og spilar það stærsta hlutverkið í því að þetta er loksins að verða að veruleika,” segir Halldór Sigurjónsson.

Frétt og mynd eru birt hér með góðfúslegu leyfi Skessuhorns og þökkum við þeim kærlega fyrir það.

Samningurinn handsalaður.               Ljósmynd: Skessuhornið - Stefán Ingvar Sig.

9. apríl 2009:                                        <Til baka>