Fréttir - Framkvæmdir hafnar við nýtt hús Björgunarsveitarinnar Lífsbjargar í Snæfellsbæ á Rifi

Þegar björgunarsveitirnar fá útkall, bregðast þær strax við eins og allir vita. Nesbyggð ehf. er líka þekkt fyrir að draga ekki til morguns það sem hægt er að gera í dag, hvort sem það er við byggingavinnu eða að koma til móts við kaupendur sína, hvort sem það varðar frágang eigna, eða með sérstöku láni til íbúðakaupenda, sem kynnt var með nýja sölufyrirkomulaginu í síðasta mánuði.

Strax og búið var að skrifa undir samning björgunarsveitarinnar og Nesbyggðar ehf. voru menn og tæki komin á staðinn og framkvæmdir þá þegar hafnar við nýtt hús Björgunarsveitarinnar Lífsbjargar í Snæfellsbæ, en björgunarstöðin er staðsett við Hafnargötu 1 á Rifi.

13. apríl 2009:                                        <Til baka>