Skrifstofan er opin 8 til 12 og 13 til 16 mán - þrið - mið - fim
Lokað á föstudögum.
Nesbyggð ehf. var stofnað 1987 en rekið í núverandi mynd frá 2002 og hefur byggt margar íbúðir síðan. Í dag eru aðalverkefni fyrirtækisins að klára þær íbúðir sem byrjað var á þegar "kreppan" skall á ásamt ýmsum viðhaldsverkefnum ásamt margskonar nýjum verkefnum sem eru aðallega á Snæfellsnesi. Í upphafi árs í upphafi árs 2011 eru starfsmenn fjórðungur af þeim fjölda þegar best lét.
Mikil áhersla er lögð á að eiga öll tæki en leigja þau ekki. Því eru starfsmenn Nesbyggðar sjaldséðir á tækja- leigum og við fjármögnunarleigur hefur fyrirtækið aldrei skipt. Sú stefna þótti gamaldags en hefur nú sannað sig. Lögð áhersla á góðan tækjakost og 1. flokks aðbúnað starfsmanna.
Nesbyggð ehf. starfar aðallega á Reykjanesi og á Snæfellsnesi eins og nafn fyrirtækisins ber með sér. Ekki er ólíklegt að fleiri staðir komi inn í myndina í nánustu framtíð.